Alþjóðlegur dagur fjölskyldna
8. janúar 2020

Til hamingju með daginn kæru fjölskyldur!

Alþjóðadagur fjölskyldunnar er 15. maí. Það var að tilstuðlan Sameinuðu þjóðanna árið 1994 að 15. maí var tileinkaður fjölskyldum heims. Markmið alþjóðlega dagsins er að vekja fólk til umhugsunar um þau vandamál sem steðja að fjölskyldum og að eyða fordómum gegn hinum ýmsu fjölskylduformum ásamt því að vekja athygli á þeim áhrifum sem félagsleg og efnahagsleg þróun hefur á fjölskyldur. Allar fjölskyldur eiga að hafa sömu tækifæri í heiminum án tillits til samsetningar, trúar og stærðar. Árlegt þema dagsins snýr að bættri menntun, loftslagsmálum og sjálfbærni. Í tilefni dagsins langar mig að vekja athygli á og kynna fjölskyldumeðferð veitta af fjölskyldufræðingum sem jákvætt úrræði þegar vandamál koma upp í fjölskyldum.


Menntun fjölskyldufræðinga

Nám í fjölskyldumeðferð geta einstaklingar sótt sem lokið hafa háskólanámi í heilbrigðis – eða félagsvísindum eða annarri sambærilegri menntun. Fjölskyldumeðferðarnámið er fjögurra missera diplómanám á meistarastigi kennt í Endurmenntun Háskóla Íslands. Stór hluti námsins er að kenna nemendum að þekkja sjálfa sig og hvers vegna brugðist er við áreitum á ákveðinn hátt. Fjölskyldusaga

nemenda er skoðuð með tilliti til áfalla og samskipta innan fjölskyldunnar og hvaða áhrif þessir þættir hafa haft á viðkomandi. Fjölskyldufræðingar hafa einnig fengð þjálfun og kennslu í því að rýna í samskipti, samskiptamynstur og hvers vegna samskipti innan fjölskyldna hafa mismunandi áhrif á einstaklingana.


Góð tengsl hafa forvarnargildi

Fjölskyldufræðingar líta svo á að fjölskyldan sé ein áhrifamesta eining þjóðfélagsins varðandi mótun og þroska einstaklinga. Fjölskyldur eru allskonar og skilgreindar á mismunandi hátt milli einstaklinga. Mikilvægt er að átta sig á að hver fjölskylda er einstök. Góð tengsl í fjölskyldum hafa mikið forvarnargildi varðandi félagslega, andlega og líkamlega líðan. Fjölskyldufræðingar líta á alla fjölskylduna sem eitt kerfi þar sem hver einstaklingur verður fyrir áhrifum af fjölskyldunni og fjölskylduheildin fyrir áhrifum af einstaklingum innan hennar.


Fjölskyldumeðferð

Fjölskyldumeðferð er árangursríkt og gagnreynt meðferðarúrræði þar sem tekið er mið af áhrifamætti fjölskylduheildarinnar og velferð hennar höfð að leiðarljósi. Meðferðin er fyrir fjölskyldur, pör, og einstaklinga sem eiga í samskipta- og tengslavanda, eiga í erfiðleikum með uppeldi barna og unglinga, búa við andleg eða líkamleg veikindi, vanlíðan, kynlífsvanda, takast á við áföll, sorg eða breytta

fjölskylduhagi í kjölfar skilnaðar eða missis svo eitthvað sé nefnt. Fjölskyldumeðferð miðar að því að auka skilning á eigin aðstæðum og annara fjölskyldumeðlima eftir því sem við á og hjálpar fólki að koma auga á eigin bjargráð og hrinda þeim í framkvæmd. Sérstaða fjölskyldumeðferðar er að unnið er með fleiri en einn í einu og heildarmyndin skoðuð. Fjölskyldufræðingar eru í raun sérfræðingar í samskiptum.

Umfangsmikil rannsókn (440.000) sem kölluð hefur verið ACE rannsóknin hefur staðfest samband milli áfalla í æsku við geðrænan og líkamlegan heilsufarsvanda síðar á ævinni.


Andleg og líkamleg heilsa í forgang

Fjölskyldufræðingar starfa margir hverjir sjálfstætt á stofum. Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð vinnur að því að sækja um löggildingu fyrir þá sem starfa á sviði fjölskyldumeðferðar. Mikilvægt er að hlúa sem best að fjölskyldum og einstaklingum og stuðla að betra heilbrigði í okkar samfélagi. Íslendingar eru m.a. aðilar að Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna, sem lögfestur var á Íslandi árið 2013, þar segir

að stjórnvöld eigi að veita foreldrum viðeigandi aðstoð til þess að geta uppfyllt uppeldisskyldur sínar. Ef vel á að vera þarf að koma til niðurgreiðsla á þjónustu sjálfstætt starfandi fjölskyldufræðinga og fjölga þarf stöðugildum á opinberum stofnunum sem koma að málefnum fjölskyldna og einstaklinga.


Ragnheiður Kr. Björnsdóttir

Fjölskyldu- og hjúkrunarfræðingur hjá Lausninni, fjölskyldu- og áfallamiðstöð.

Eftir Baldur og Barbara 16. desember 2024
Jólaþáttur hefðir og væntingastjórnun
Eftir Baldur Freyr Einarsson 16. desember 2024
Jólaþáttur hefðir og væntingastjórnun
Eftir Von Ráðgjöf - Hlaðvarp Lausnarinar 24. nóvember 2024
Í þessum skemmtilega þætti kíkjum við aðeins á aðferðarfræði Gottmanns til að auka stöðugleika og hamingju í parsambandinu, hvað ber að forðast og hvernig við getum gert betur. VIð kíkjum á reiðmennina fjóra, gagnrýni, fyrirlitningu, varnarhátt og steinvegginn. Þessar aðferðir eru allar fyrirboði um hvernig við gröfum undan parsambandinu. Við leggjum einnig áherslu á að rækta þessi daglegu samskipti, sem byggja grunn traust og stöðug tengsl. Að skilja innri heim maka þíns og bregðast á jákvæðan hátt við beiðnum hans um athygli sem fær okkur til að upplifa að við séum séð og heyrð. Við ræðum einnig hvernig við getum snúið riddurunum við, þ.e. byrja á blíðu upphafi í samræðum í stað gagnræyni, byggja menningu þakklætis frekar en fyrirlitningu, taka ábyrgð í stað þess að fara í vörn og æfa sig í að tjá sig í stað þess að lokast af. Að lokum ræðum við námskeiðið sem verður næsta haust þ.e. í október 2025 - sem er spennandi nýjung sem Baldur og Barbara bjóða uppá. V ið hvetjum ykkur til að hlusta á þáttinn, megið endilega deila honum og gefa okkur endurgjöf á hann. https://www.lausnin.is/ Kíkið á Instagram síðuna okkar: Von ráðgjöf https://www.instagram.com/vonradgjof.is  Meira um green cola: https://us.greencola.com/
Eftir Von Ráðgjöf - Hlaðvarp Lausnarinnar 24. nóvember 2024
Í þessum skemmtilega þætti kíkjum við aðeins á aðferðarfræði Gottmanns til að auka stöðugleika og hamingju í parsambandinu, hvað ber að forðast og hvernig við getum gert betur. VIð kíkjum á reiðmennina fjóra, gagnrýni, fyrirlitningu, varnarhátt og steinvegginn. Þessar aðferðir eru allar fyrirboði um hvernig við gröfum undan parsambandinu. Við leggjum einnig áherslu á að rækta þessi daglegu samskipti, sem byggja grunn traust og stöðug tengsl. Að skilja innri heim maka þíns og bregðast á jákvæðan hátt við beiðnum hans um athygli sem fær okkur til að upplifa að við séum séð og heyrð. Við ræðum einnig hvernig við getum snúið riddurunum við, þ.e. byrja á blíðu upphafi í samræðum í stað gagnræyni, byggja menningu þakklætis frekar en fyrirlitningu, taka ábyrgð í stað þess að fara í vörn og æfa sig í að tjá sig í stað þess að lokast af. Að lokum ræðum við námskeiðið sem verður næsta haust þ.e. í október 2025 - sem er spennandi nýjung sem Baldur og Barbara bjóða uppá. Við hvetjum ykkur til að hlusta á þáttinn, megið endilega deila honum og gefa okkur endurgjöf á hann. https://www.lausnin.is/ Kíkið á Instagram síðuna okkar: Von ráðgjöf https://www.instagram.com/vonradgjof.is  Meira um green cola: https://us.greencola.com/
Eftir Vin ráðgjöf - Hlapvarp Lausnarinnar 22. október 2024
Von Ráðgjöf: Skilningur á framhjáhaldi – mismunandi birtingarmyndir þess í samböndum
Eftir Von Ráðgjöf - Hlaðvarp Lausnarinnar 22. október 2024
Von Ráðgjöf: Skilningur á framhjáhaldi – mismunandi birtingarmyndir þess í samböndum
Hlaða fleiri greinum
Share by: