Gottman þjálfun fyrir þá sem eru eða vilja vinna með pörum
30. mars 2025

Við bjóðum upp á einstakt tækifæri til að efla faglega færni í samskipta / pararáðgjöf.


Ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara að læra aðferðir Gottmans. Gottman hjónin John og Julia hafa varið 50 ára vinnu í að rannsaka parsambandið, þar hafa þau farið ofan í kjölin á því hvað fær parsamband til að virka og hvað fær það til að klikka. Þau byggja niðurstöður sínar á þessum áratuga rannsóknum.


Við hjá Lausninni kynnum til leiks Gottman stig 1 & 2, sem veitir þér aðgang að gagnreyndri aðferð til að styrkja faglega hæfni þína í að vinna með pör/hjón og í raun öll samskipti yfirhöfuð.. Námskeiðið er staðnámskeið.


Námskeiðið fer fram 1. - 5. maí 2025


Staðsetning: Ármúla 40, í húsnæði Lausnarinnar 


Kennari: Chris Cambas, vottaður Gottman-meðferðaraðili og reyndur kennari í Gottmann fræðunum.


Um Chris Cambas:

Við erum stolt af því að kynna Chris Cambas sem leiðbeinanda á komandi Gottman-námskeiði okkar.
Chris er 
löggiltur hjóna- og fjölskylduráðgjafi með yfir 50.000 klukkustunda reynslu í að vinna með pörum. Hann er vottaður Gottman-meðferðaraðili og kennari, auk þess að vera meðstofnandi National Marriage Seminars og CoupleStrong í Ameríku. Hann hefur einnig stofnað og stýrir Tampa Bay Christian Counseling Center, þar sem hann hefur hjálpað ótal pörum að styrkja sambönd sín. Með yfirgripsmikla þekkingu og ástríðu fyrir að aðstoða pör mun Chris veita þátttakendum dýrmæta innsýn og verkfæri til að bæta faglega færni sína í meðferðarvinnu.


Af hverju ættir þú að taka þátt?

✅ Eykur skilning þinn á samskiptamynstri para byggt á vísindalegum aðferðum. 

✅ Nærð yfirgripsmikilli þekkingu og öðlast verkfæri til að styðja pör í að styrkja samband sitt. 

✅ Tekur fyrsta skrefið í að geta orðið vottaður Gottmann-meðferðaraðili. 

✅ Undirbýr þig fyrir stig 3, sem verður kennt haustið 2025 hér á Íslandi.


Námskeiðið er fyrir fólk með háskólamenntun og/eða markþjálfa


Skráning og verð


💰 Verð: 220.000 kr. 

💰 Skráning fyrir 2. apríl: veitir 10% afslátt! 


📩 Skráning og nánari upplýsingar: [email protected]


Hafir þú einnig áhuga á að ljúka stigi 3 geturðu hafist handa við vottunarferli þitt hjá Gottmann-stofnuninni.


Ekki missa af tækifæri til að efla færni þína í paravinnu og styrkja faglega framtíð þína í meðferðarvinnu!


Síðasta Gottman námskeið hér á Íslandi var haldið fyrir tæpum 15 árum. Þetta er því einstakt tækifæri til að auka við þekkingu og færni í þessum gagnreyndu parafræðum.


·      Flest öll stéttarfélög taka þátt í niðurgreiðslu námskeiðsins, einnig er hægt að fá ECTS einingar á þessu námskeiði.


Eftir Baldur og Barbara 16. desember 2024
Jólaþáttur hefðir og væntingastjórnun
Eftir Baldur Freyr Einarsson 16. desember 2024
Jólaþáttur hefðir og væntingastjórnun
Eftir Von Ráðgjöf - Hlaðvarp Lausnarinar 24. nóvember 2024
Í þessum skemmtilega þætti kíkjum við aðeins á aðferðarfræði Gottmanns til að auka stöðugleika og hamingju í parsambandinu, hvað ber að forðast og hvernig við getum gert betur. VIð kíkjum á reiðmennina fjóra, gagnrýni, fyrirlitningu, varnarhátt og steinvegginn. Þessar aðferðir eru allar fyrirboði um hvernig við gröfum undan parsambandinu. Við leggjum einnig áherslu á að rækta þessi daglegu samskipti, sem byggja grunn traust og stöðug tengsl. Að skilja innri heim maka þíns og bregðast á jákvæðan hátt við beiðnum hans um athygli sem fær okkur til að upplifa að við séum séð og heyrð. Við ræðum einnig hvernig við getum snúið riddurunum við, þ.e. byrja á blíðu upphafi í samræðum í stað gagnræyni, byggja menningu þakklætis frekar en fyrirlitningu, taka ábyrgð í stað þess að fara í vörn og æfa sig í að tjá sig í stað þess að lokast af. Að lokum ræðum við námskeiðið sem verður næsta haust þ.e. í október 2025 - sem er spennandi nýjung sem Baldur og Barbara bjóða uppá. V ið hvetjum ykkur til að hlusta á þáttinn, megið endilega deila honum og gefa okkur endurgjöf á hann. https://www.lausnin.is/ Kíkið á Instagram síðuna okkar: Von ráðgjöf https://www.instagram.com/vonradgjof.is  Meira um green cola: https://us.greencola.com/
Eftir Von Ráðgjöf - Hlaðvarp Lausnarinnar 24. nóvember 2024
Í þessum skemmtilega þætti kíkjum við aðeins á aðferðarfræði Gottmanns til að auka stöðugleika og hamingju í parsambandinu, hvað ber að forðast og hvernig við getum gert betur. VIð kíkjum á reiðmennina fjóra, gagnrýni, fyrirlitningu, varnarhátt og steinvegginn. Þessar aðferðir eru allar fyrirboði um hvernig við gröfum undan parsambandinu. Við leggjum einnig áherslu á að rækta þessi daglegu samskipti, sem byggja grunn traust og stöðug tengsl. Að skilja innri heim maka þíns og bregðast á jákvæðan hátt við beiðnum hans um athygli sem fær okkur til að upplifa að við séum séð og heyrð. Við ræðum einnig hvernig við getum snúið riddurunum við, þ.e. byrja á blíðu upphafi í samræðum í stað gagnræyni, byggja menningu þakklætis frekar en fyrirlitningu, taka ábyrgð í stað þess að fara í vörn og æfa sig í að tjá sig í stað þess að lokast af. Að lokum ræðum við námskeiðið sem verður næsta haust þ.e. í október 2025 - sem er spennandi nýjung sem Baldur og Barbara bjóða uppá. Við hvetjum ykkur til að hlusta á þáttinn, megið endilega deila honum og gefa okkur endurgjöf á hann. https://www.lausnin.is/ Kíkið á Instagram síðuna okkar: Von ráðgjöf https://www.instagram.com/vonradgjof.is  Meira um green cola: https://us.greencola.com/
Eftir Vin ráðgjöf - Hlapvarp Lausnarinnar 22. október 2024
Von Ráðgjöf: Skilningur á framhjáhaldi – mismunandi birtingarmyndir þess í samböndum
Eftir Von Ráðgjöf - Hlaðvarp Lausnarinnar 22. október 2024
Von Ráðgjöf: Skilningur á framhjáhaldi – mismunandi birtingarmyndir þess í samböndum
Hlaða fleiri greinum