HLAÐVÖRP

Eftir Baldur Freyr Einarsson 16. desember 2024
Jólaþáttur hefðir og væntingastjórnun
Eftir Von Ráðgjöf - Hlaðvarp Lausnarinnar 24. nóvember 2024
Í þessum skemmtilega þætti kíkjum við aðeins á aðferðarfræði Gottmanns til að auka stöðugleika og hamingju í parsambandinu, hvað ber að forðast og hvernig við getum gert betur. VIð kíkjum á reiðmennina fjóra, gagnrýni, fyrirlitningu, varnarhátt og steinvegginn. Þessar aðferðir eru allar fyrirboði um hvernig við gröfum undan parsambandinu. Við leggjum einnig áherslu á að rækta þessi daglegu samskipti, sem byggja grunn traust og stöðug tengsl. Að skilja innri heim maka þíns og bregðast á jákvæðan hátt við beiðnum hans um athygli sem fær okkur til að upplifa að við séum séð og heyrð. Við ræðum einnig hvernig við getum snúið riddurunum við, þ.e. byrja á blíðu upphafi í samræðum í stað gagnræyni, byggja menningu þakklætis frekar en fyrirlitningu, taka ábyrgð í stað þess að fara í vörn og æfa sig í að tjá sig í stað þess að lokast af. Að lokum ræðum við námskeiðið sem verður næsta haust þ.e. í október 2025 - sem er spennandi nýjung sem Baldur og Barbara bjóða uppá. Við hvetjum ykkur til að hlusta á þáttinn, megið endilega deila honum og gefa okkur endurgjöf á hann. https://www.lausnin.is/ Kíkið á Instagram síðuna okkar: Von ráðgjöf https://www.instagram.com/vonradgjof.is  Meira um green cola: https://us.greencola.com/
Eftir Von Ráðgjöf - Hlaðvarp Lausnarinnar 22. október 2024
Von Ráðgjöf: Skilningur á framhjáhaldi – mismunandi birtingarmyndir þess í samböndum
13. október 2022
Í þessum þætti ætlum við að ræða um tengsl og ávinning þess að eiga í góðum tengslum við fólk sem að marga ef ekki að allra mati er lífsnauðsynlegur þáttur til að öðlast hamingju. Endilega deilið þessu fyrir okkur! Hérna er meira um píramýda Maslow https://www.simplypsychology.org/maslow.html
13. október 2022
Í þessum þætti tölum við um gildi Sjálfsmyndar. Hversu mikilvægt það er að eiga heilbrigða og sterka sjálfsmynd og ávinninginn af því að stuðla að heilbrigðri sjálfsmynd. Við vonum að þið njótið vel og þökkum kærlega fyrir hlustunina.
13. október 2022
í þessum þætti tölum við aðeins um að hafa stjórn á orðum okkar. Það sem við segjum getur haft ótrúlega sterk og mikil áhrif á fólk í kringum okkur. Annað hvort slæm eða góð. Taumhald er þjálfun sem fæst með stöðugri og samviskulegri ástundun. Við höfum getuna til að skapa góðar jafnt sem slæmar aðstæður með kraftinum sem liggur í orðum okkar. Gættu þess því hvaða orð líða af vörum þínum: Framtíð þín veltur á því!
11. maí 2022
Í þessum þætti förum við yfir gildið að hlusta og áhrif þess á okkur sem einstaklinga og pör. Getur það haft áhrif á raunveruleika okkar sem og samskipti að læra að hlusta á aðra? Endilega deilið þættinum fyrir okkur og við þökkum ykkur kærlega fyrir að gefa ykkur tíma til að hlusta á okkur.
3. maí 2021
Meðvirkni, áföll,
4. desember 2020
Í þessum þætti tölum við um hvernig er hægt að eignast góð samskipti í parsambandinu.
14. september 2020
“Áður en leiðir skilja og 6 sek kossinn” Áður en leiðir skilja á morgnanna, verjið 2 mín í að spjalla við maka ykkar til að uppgötva alla vega einn ahugaverðan viðburð sem mun eiga sér stað um daginn hjá honum/henni. Munið svo að kveðja hvert annað með kossi sem endist allavega í 6 sekúndur (þekktur sem 6 sek. kossinn). Þetta gerið þið svo alla virka daga. “Aðdáun/ástúð og þakklæti/þakklátssemi” Til að viðhalda innilegu parsambandi þurfum við að gera og tjá ákv. þætti/hluti. Það er ekki nóg að hafa góðar, þekklátar hugsanir um makann, það er mjög mikilvægt að orða þær upphátt og láta hann/hana vita. Reglulegar tjáningar af aðdáun og þakklæti gagnvart maka hjálpar okkur að byggja upp ástar grunn. Hér eru nokkrar aðferðir til að gera það: · Deildu einhverju um persónueinkenni maka þíns og ákv. atvik þar sem þetta karaktereinkenni kemur sterkt fram: Dæmi: Ég dáist að því hvað þú ert (umhyggjusöm, nærgætin, góð, kröftug, blíð, ljúf og skilningsrík) sérstaklega áðan þegar þú varst að leika við dóttur okkar. · Gríptu maka þinn að því að gera eitthvað “rétt” og þakkaðu fyrir það. · Sendu tölvupóst/sms eða hringdu yfir daginn og láttu maka þinn vita að þú sért að hugsa til hans/hennar. · Stingdu skrifaðri ástarkveðju í bílinn/veskið hennar/hans. Heilsaðu maka þínum með kossi þegar þið hittist. Finnið svo tíma þar sem þþið getið átt samræður sem losa um streitu í líkamanum. Hvernig þið náið að halda utan um streitu skiptir sköpum fyrir parsambandið. Rannsóknir hafa sýnt að pör sem hafa náð að halda utanaðkomandi streitu frá parsambandinu sínu eins og hægt er gátu viðhaldið jákvæðum breytingum í sambandinu til lengri tíma. Episode is Live Published: Sep. 14, 2020 @10AM Edit Unpublish Add a Transcript Get episode better indexed by search engines. Add Chapter Markers Listeners can tap through & see what’s coming up. Create a Visual Soundbite Best way to share to social media for engagement. Share Episode On Facebook Twitter LinkedIn More Options Email Link to Episode Direct Link to MP3 Embed this ONE Episode View Episode Stats
Hlaða fleiri hlaðvörpum
Share by: