Jóna Margrét Ólafsdóttir

Áfengis-og vímuefnamál, flókin fjölskyldutengsl, áföll, streita, kvíði og þunglyndi. Fjölskyldu, para og einstaklingsmeðferð.

Menntun og

fyrri starfsreynsla

  • Félagsráðgjafi, PhD.
  • Master Addiction Counselor (MAC)
  • Áfengis-og vímuefnaráðgjafi

Jóna Margrét Ólafsdóttir lauk doktorsprófi í Félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og University of Lappland, Finnlandi árið 2020. Sérsvið hennar er áfengis-og vímuefnamál, fjölskyldu, para og einstaklingsmeðferð. Jóna er einnig menntaður áfengis- og vímuefnaráðgjafi og með meistaragráðu sem slík frá NAADAC í Bandaríkjunum frá 2017.


Jóna Margrét hefur starfað sem klínískur félagsráðgjafi frá árinu 2009 – 2017 hjá Lifandi ráðgjöf og 2018 – 2023 hjá Lækninga og sálfræðistofunni ásamt því að vera starfandi lektor við Félagsráðgjafardeild, HÍ.


Í meðferðarstarfi styðst Jóna Margrét við kerfis- og tengslakenningar og leggur áherslu á að beita gagnreyndum aðferðum eins og hugrænni atferlismeðferð (HAM), hvatningarviðtölum (MI) og lausnamiðaðri nálgun.

Sérstakar áherlsur

Áfengis-og vímuefnamál, flókin fjölskyldutengsl, vinna með samskipti, fíkn, úrvinnslu áfalla, streitu, kvíða, depurðar og þunglyndis.

Tungumál

Íslenska

English

Share by: